8.12.07

Textasafn Bláa Hnefans - af Sögum úr Klandurbæ...



1. Söngvar úr sómatúni

Þar sem háir hústurnar hálft hverfið hylja
& hádegisólin nær ekki að skína
hver að góna á heiðina skyldi vilja
horfðu frekar á veggina mína

Þar sem háir hústurnar hálfu hverfi drekkja
& blokkir blokka útsýnið allt
Reynt var með eigendunum að rekkja
í rúmi sem reyndist svo valt

Þar sem háir hústurnar hálft hverfið skyggja
& heilagt er ekkert sem áður var sagt
Þar sem ekkert fær í friði að liggja
& ekkert stenst sem í útaf var lagt

Þar sem háir hústurnar hálfu hverfi rústa
& alltaf er nágrannabyggðin að stækka
& ráðandi öfl ekki einu sinni pústa
við að halda útsvari í hámarki en ekki lækka


2. Er skúff í gangi? (að vinna ekki fyrir eigin stöðu)

Hvernig er það að vera eftirbátur
hangandi lufsa í kjölfari?
Hvernig er að fá bara úthlutað embætti
vegna þess að annar flúði af hólmi?

hvernig er svo að geta ekki tekið
ákvarðanir vegna þess að búið er að mála myndina
og ekkert sem er gert gengur upp
Af því að þú hímir hnípin í horni

Og felur þig á bakvið ósvöruð símtöl
á bakvið ósvaraða pósta
Það er ekki eins og þú hafir til að bera
annað en mínustölu í útgeislun greyið mitt

En er eitthvað skúff í gangi
er eitthvað skúff í gangi
er eitthvað skúff í gangi

vegna vanhæfis þín og vesaldóms


3. Kjötbollubyltingin

Í stað þess að breiðu spjótin voru skökuð
og í stað þess að veifa kalasnikóvum

var ráðist á verndara kvenna
og vammlausa jafnréttisstýruna
með kjötbollur einar að vopni

Og bæjarstjóri skuggana
smyr í ferðagraða

Engin varð þó ólífur eftir byltinguna en margir urðu margt sverari

En svona er það með græningja
að maturinn er þeirra megin

& blóðlausar byltingar þeirra
Skilja ekkert eftir nema auðn
því ekki er andskotann

Hægt að stóla á að þeir fylgist með
öðru en sjóðandi pottunum

Engin varð þó ólífur eftir byltinguna en margir urðu margt sverari



4. Hvaðan kemur þetta fól(k)?

Svo er spurt hvað skömmin heitir
& er það erfðarsynd íhaldsins
Íhaldsins sem spyr ekki
um flokk eða félagið

heldur rígheldur í eiginhagsmuni
& ímynduð völd

Með hann pinnstífan í valdafýsn

Fælir frá sér skapandi gáfur
& heilbrigðar hugsjónir
til að greypa mynd múgsins
af spillingu og klíkuskap

endanlega í meginminni
samfélagsins

Með hann pinnstífan í valdafýsn

En seint verður orðum aukið
Afkáralegt hversu það er
Að með því að smeygja um hálsinn
helsissnöru meðalmennskunar

Er helvíti auðvelt að hengja sig
& það gerist alltaf aftur & aftur

Spottinn sem er notaður
til að dingla sér í
Er jú vafningur þess
að velja alltaf siðleysið
í vinsældarkosningum
að velja alltaf meðalmennsku
í gloppóttu minninu
að leyfa fólki að gera
sér hreiður sem skilur ekkert eftir sig
nema skítahrauka í hornunum
og svaðalegan fnyk

Með hann pinnstífan í valdafýsn

5. 18-23

Það er svo undarlegt
með einstakar ákvarðanir
að enginn virðist vilja
bera ábyrgð á þeim

& þegar stýran stendur
stafninum í & afræður
Þá eru víst ekki nem a 3
sem að málinu koma

En af þessu verður
& af peningum menn verða
en enginn ber ábyrgð
nema að það gleymist ekki

& afleiðingarnar urðu þær
að í staðinn fyrir að halda
lýðnum öllum á einum stað
flæddi hann í afkimana

Þar ruddist hann í garðana
gekk örna sinna á stéttunum
tappaði af sér á göturnar
& börnin máttu inni sitja vegna glerbrota & skrílsláta á götunum


6. Með vini eins & þessa...

Með vini eins & þessa
hver þarf óvini
Bergþursinn & bolarnir
sem ætla allt að eiga

Með vini eins og þessa

En hvað er nú að gerast
í höllinni hennar S
Bergþursinn skellir hurðum
& öskrar á hana bless

Með vini eins og þessa

Ætli S sjálf næsta sumar
sitji sveitt í því
Að tryggja að hingað komi gumar
og píur á fyllerí

Ef ekkert verður af því
má bóka það að S
Verður tjörguð & fiðruð
af barvertum & kaupahéðnum

Eftir hverju eru þið að bíða?

Með vini eins og þessa

With friends like these
...Who needs enemas...


7. Sauðdrukkinn lá

af saltkjöti á fæti
valt þessi vammlausi
kontróller
inn á kontórinn
og situr með stífbónaðann
skallann & svitnar ekki einu sinni
þegar hann er gripinn með brækurnar á hælunum

því hann er jú máttarstólpi
margskilinn
misskilinn

& á móti tekur
heimsóknum fyrirmenna
& kvenna
af háaðli er kynið
& af hæversku hann beygir
sig undir að vera ekki mæltur
á tungu gestsgreyanna sem á hann mæna

því hann er jú máttarstólpi
meinfýsinn
margfýsinn

en það er jú vænst
að brynja sig upp
berð’í mig brennivín,
svo ég fíli mig á hestbaki
en láttu svo eins & þú takir ekki eftir því
þegar ég slefa og tafsa, þrefa og þusa
æli og sauðdrukkinn ligg í ljómanum af stöðunni minni

Því hann passar upp á börnin sín

8. gröfum, gröfum, gröfum með gulri gröfu göturnar í tvennt

Gröfum
gröfum
gröfum

með gulri gröfu
garðinn okkar í tvennt,

Það er svo flott
að moka í hrauk
landinu okkar
og skipta því
með síki

afsakið samt
eina stunda
er ekki um að ræða
að meginþorri
hinna ungu
og einusinni
efnilegu
landa okkar
var saknað eftir
sukkferðir í
skólana í köben
eingöngu vegna
drukknana í síkjunum

er það er víst of mikið af ungum á Akureyri nú þegar & ferskleikinn of mikill

Andskotinn hafi það

gröfum
gröfum
gröfum

með gulri gröfu
göturnar í tvennt


9. Eineltisdraugar frá Dalvík

Læðist meðfram veggjunum
með horugt nef & niðurlútur

Ekkert þráir meira en það að hverfa
Frá endalausri, að virðist,
Nauðung og smán

Læðist útúr skólanum
& leitar að skemmri leið heim

Þegar aldurinn loksins kemur
Er leiðin styst úr bænum

Ekkert þráir meira en það að hverfa
Frá endalausri, að virðist,
Nauðung & smán

& slóðinn leiðir hann í langskóla
Leiðir hann svo aftur heim

Hvar hann uppfræðir & líknar
Leitast við að fræða

Ekkert þráir meira en það að hverfa
Frá endalausri, að virðist,
Nauðung & smán

En svo vakna upp langanir
til að stýra & leiða

En afrekin falla í skuggann
á reimleikum liðinna tíma

Ekkert þráir meira en það að hverfa
Frá endalausri, að virðist,
Nauðung & smán

& brúðumeistari barnakvalar
bælir hann niður áfram

& vesaldómurinn heldur áfram í viðsnúningi & undirlægjuháttum

10. Skilgreindu menningu manni minn...

Skilgreindu
menningu
manni minn

segðu mér að það sé rétt að byggja upp menningu hérna

því menning er víst bara boltinn
& þó málarinn sé soltinn
er skemmst frá því að segja
að svíða jörð með því að beygja
frá menningarstefum síðustu
ára, heldur að dæla í þá fríðustu
fótboltadrengi en ekki konur...

skilgreindu menningu manni minn

en menningunni má ekki gera
svo hátt undir höfði svo við skulum skera
niður fjármagnið & styðja ei
penslariddara og skúlptúragrey
heldur hvetja til þess að allir hlaupi
ekki í spik & inn á leikina sig kaupi
og passa það að bærinn verði aftur sótsvart verkamannaból

skilgreindu menningu manni minn

& verður henni betur borgið
með því að reisa fyrir neðan torgið
hringleikahús 21. aldar fáránleika
hvar slátrað verður án þess að skeika


11. 13,03

þrettán komma núll þrír
að fyrstu gerð lengi býr
þrettán komma núll þrír
stöðnunina enginn flýr

nema með því að spyrja sig
hvort að ekki sé komið slig
í stöðnunina og vesaldóm
tími til að rífa burtu innantómt hjóm

þrettán komma núll þrír
að fyrstu gerð lengi býr
þrettán komma núll þrír
stöðnunina enginn flýr

Vantraust á að raunverulegt eðlið
sé til þess fallið að gæta hagsmuna
allra hinna sem í blindni völdu
potara eiginhagsmuna í ökumannssætið

þrettán komma núll þrír
að fyrstu gerð lengi býr
þrettán komma núll þrír
stöðnunina enginn flýr

Bylur hæst í blikktunnu
böndin eru ekki sterk
& bresta svo á endandum
með beljandi hljóm

Í hvað fer svo aurinn minn
í hvað fer svo aurinn minn

ég held að aurinn minn verði aurinn aursins...

25.11.07

Hnefinn er við það að kreppast...

og fara að slá - eins og málin standa í dag eru mestar líkur á því að útgáfutónleikum verði flýtt um nokkrar klukkustundir en eftir sem áður er haldin uppákoman í kjallara listasafnsins, greninu betra þekkt undir nafninu Populus Tremula.

Þeir sem leggja hnefanum lið í ævintýrinu eru meistararnir Valur "Hvanndal" - Rögnvaldur "Hvanndal" og Kristján Pétur Sigurðsson, alls óskyldur Hvanndal klaninu en alls ekki síðri nema eitthvað sé performer en tveir fyrstnefndu...

Ef einhver sem þetta les hefur áhuga þá er tíminn 00:01 þann 1. desember

Lagalisti

sögur úr klandurbæ

1. Söngvar úr sómatúni
2. Er skúff í gangi? (að vinna ekki fyrir eigin stöðu)
3. Hver er innfæddur?
4. Hvaðan kemur þetta fól(k)?
5. 18-23
6. Með vini eins og þessa...
7. Sauðdrukkinn lá
8. gröfum, gröfum, gröfum með gulri gröfu garðinn í tvennt
9. Eineltisdraugar frá Dalvík
10. Skilgreindu menningu manni minn...
11. 13,03

26.10.07